Sagan okkar

Um Götubitinn

Frá hugmynd í London til stærsta matarviðburðar á Íslandi — þetta er saga Götubitans.

2018Stofnað
1.000+Viðburðir
100.000+Gestir á hátíð
30+Söluaðilar

Frá London til Reykjavíkur

Götubitinn — Reykjavík Street Food var stofnað árið 2018 af Róbert Aron Magnússyni, eftir 11 ára búsetu í London þar sem hann kynntist blómlegri götubitamennigu og matarviðburðum. Þegar hann flutti heim til Íslands sá hann tækifæri til að byggja upp svipaða menningu hér — og sló til.

Fyrirtækið hóf göngu sína með matarvögnum sem ferðuðust um úthverfi Reykjavíkur og kynntu fólki nýjar bragðtegundir. Viðtökurnar voru ótrúlegar — íbúar voru þyrstir í fjölbreytni og nýja matarupplifun. Þaðan uxu viðburðirnir hratt og Götubitinn varð fljótt leiðandi á sviði matarviðburða á Íslandi.

Í dag hefur Götubiti ehf staðið að yfir 1.000 viðburðum og er eitt þekktasta viðburðafyrirtæki landsins á sviði matarmenningar og götumatar. Fyrirtækið sér um allt frá einkasamkvæmum og fyrirtækjaviðburðum til stórra hátíða með þúsundum gesta.

Götubitahátíðin — stemning og matarupplifun
Stofnandi

Róbert Aron Magnússon

Eigandi og framkvæmdarstjóri

Róbert Aron Magnússon er veitinga-, viðburða- og athafnamaður með yfir 25 ára reynslu í markaðs- og viðburðamálum. Hann hefur sett upp og rekið fjölda veitingastaða og er þekktur fyrir að hugsa út fyrir boxið og fara óhefðbundnar leiðir í veitingarekstri.

Eftir 11 ára búsetu í London, þar sem hann kynntist blómlegri street food mennigu, flutti Róbert heim til Íslands og stofnaði Götubitann — Reykjavík Street Food. Hann sá tækifæri á íslenskum veitingamarkaði sem enginn annar hafði nýtt og byggði upp vettvang sem hefur breytt matarmenningunni á Íslandi.

Undir forystu Róberts hefur Götubitahátíðin vaxið úr 15.000 gestum í yfir 100.000 gesti og er nú stærsti matarviðburður á Íslandi. Hann hefur einnig barðist fyrir einfaldari leyfisveitingum og betra rekstrarumhverfi fyrir atvinnurekendur í veitingageiranum.

„Þegar ég sé tækifæri þá á ég það til að fara óhefðbundnar leiðir. Ég hef gaman af áskorunum og hugsa út fyrir boxið og geri eitthvað öðruvísi."— Róbert Aron Magnússon
Viðburðir

Helstu viðburðir

Götubitahátíðin

Hljómskálagarðurinn, Reykjavík

Stærsti matarviðburður Íslands með yfir 100.000 gestum. Yfir 30 söluaðilar frá 15+ þjóðlöndum bjóða upp á fjölbreytt úrval af götumat. Hátíðin er hluti af European Street Food Awards (ESFA) þar sem keppt er um besta götubitann á Íslandi og sigurvegarinn fer á Evrópumót.

100.000+ gestir30+ söluaðilarESFA keppni

Reykjavík BBQ Festival

Kolaportið, Tryggvagata

Fyrsta BBQ- og reykmatarhátíðin á Íslandi. Bestu grillarar landsins keppa um titilinn Grillmeistara Íslands. Opinn matarmarkaður með BBQ-sósum, kjötvörum og meðlætum. Weber er aðalsamstarfsaðili hátíðarinnar.

BBQ keppniMatarmarkaðurWeber sýning

Menningarnótt

Hljómskálagarðurinn, Reykjavík

Árleg þátttaka í Menningarnótt Reykjavíkur. Matarmarkaður og stemning í miðborg Reykjavíkur þar sem tugþúsundir gesta njóta matarupplifunar og menningar.

Árlegur viðburðurMiðborg24 söluaðilar

17. júní — Þjóðhátíðardagurinn

Reykjavík

Matarmarkaður og viðburðir á þjóðhátíðardegi Íslendinga. Þúsundir gesta njóta götumatar og hátíðarstemningar á hverjum ári.

ÞjóðhátíðÞúsundir gestaMatarmarkaður

Hvað gerum við?

Götubitinn sérhæfir sig í skipulagningu matarviðburða og útleigu matarvagna. Við bjóðum upp á heildarlausn — frá vali á matarvögnum og skipulagningu viðburða til framkvæmdar á staðnum. Hvort sem um er að ræða einkasamkvæmi, fyrirtækjaviðburð, tónlistarhátíð eða bæjarhátíð, við sjáum um allt.

Götubitinn er eini aðilinn á Íslandi sem býður upp á þessa tegund þjónustu í þessum mælikvarða. Með djúpa þekkingu á skipulagningu matarviðburða, tengslum við bestu framleiðendur og reynslu af því að taka á móti tugþúsundum gesta, erum við vel í stakk búin til að sjá um hvaða viðburð sem er.

MatarviðburðirMatarvagnaleigaFyrirtækjaviðburðirEinkasamkvæmiHátíðir og festivalarMatarmarkaðirVeisluþjónustaEuropean Street Food Awards

Samstarfsaðilar

Götubitinn hefur átt í samstarfi við fjölda fyrirtækja í gegnum árin. Meðal lykilsamstarfsaðila eru Teya (greiðslulausnir) og Weber (grillbúnaður). Samstarfið við Teya markaði tímamót þegar það gerðist lykilsamstarfsaðili Götubitans og Götubitahátíðarinnar, meðal annars í formi ferðastyrks til sigurvegara til að taka þátt í European Street Food Awards.

Viltu vera hluti af sögunni?

Hvort sem þú vilt bóka matarvagn fyrir viðburð eða skrá þinn eigin matarvagn á vettvang Götubitans — við hlökkum til að heyra frá þér.