24.ágúst 2024
Vesturgata 2c, Grófin, 101 Reykjavík, Ísland

Siggi Chef x Brixton – Blokk partý

Brixton x Siggi Chef „blokk partý“ á Menningarnótt.

Brixton og Siggi Chef ætla að henda í svakalegt „blokk partý“ í portinu við Tryggvagötu 20 á Menningarnótt, 24. ágúst.

Siggi Chef vannn nýlega sem „Besti Götubiti Íslands 2024“, þar sem hann bauð uppá „Chopped brisket slider, birria style” og verður þessi réttur í boði á viðburðinum.  Siggi er jafnframt yfirkokkur á Brixton, en það er nýtt veitingakonsept sem mun opna á næstu vikum.

Loksins gefst fólki tækifæri á að smakka “Besta Götubita Íslands 2024” á Menningarnótt.

Kveikt verður á grillinu uppúr klukkan 15.00 og það verður frábær tónlistardagskrá frameftir degi. Kjöt, reykur, bjór, tónlist, plötusnúðar, Eternal Sound system og geggjaður fílingur.

Komdu og kíktu í fíling á Brixton x Siggi Chef Blokk Partý!

Siggi

Siggi chef

Staðsetning

Götubiti ehf. - Kt. 4705193710 - Allur réttur áskilinn - Skilmálar - Persónuvernd